Garðepli ‘Transparante blanche’
Upplýsingar
- Latneskt heiti: Malus domestica 'Transparante blanche'
- Plöntuhæð: 5-8 m
- Blómlitur: Hvítur
- Blómgunartími: Júní
Lýsing
Gamalreynt yrki sem hefur reynst vel hérlendis. Nokkur tré á í Rvk. þroska aldin reglulega utanhúss. Þarf skjólgóðan og sólríkan vaxtarstað. Þrífst best í djúpum, næringarríkum og vel framræstum jarðvegi. Sjálffrjóvgandi að nokkru leyti en betra ef annað tré er til staðar.