Blátoppur ‘Þokki’

Upplýsingar

  • Latneskt heiti: Lonicera caerulea 'Þokki'
  • Plöntuhæð: 1-2 m
  • Blómlitur: Hvítur
  • Blómgunartími: Júní


  • Lýsing

    Harðgerður, skuggþolinn, vind og saltþolinn runni. Þrífst best í rökum og vel framræstum jarðvegi.Hentar vel í limgerði þar sem hann þolir vel klippingu. Laufgast snemma. Blá óæt ber seinni part sumars.