
Svartyllir ‘Thundercloud’
Upplýsingar
- Latneskt heiti: Sambucus nigra 'Thundercloud'
- Plöntuhæð: 30-40 cm
- Blómlitur: Hvítur
- Blómgunartími: Júlí - September
Lýsing
Margstofna runni. Þarf bjartan vaxtarstað en þolir vel hálfskugga. Þarf frjóan og vel framræstan jarðveg. Blöðin græn í fyrstu en verða svo dökk vínrauð ef plantan fær næga birtu. Blómin sitja saman í þéttum sveipum. Svört ber á haustin. Kelur oft hér á landi en kemur upp aftur frá rót, en nær þá ekki alltaf að blómstra.