Rós ‘Peer Gynt’
Upplýsingar
- Latneskt heiti: Rosa 'Peer Gynt'
- Plöntuhæð: 0,6-0,8 m
- Blómlitur: Gulur
- Blómgunartími: Júlí - September
Lýsing
Eðalrós / Stórblóma (stilk) rós sem þarf skjólgóðan og sólríkan vaxtarstað, loft – og næringarríkan jarðveg. Blómin gul með aðeins roða í köntunum, fylt með daufum ilmi. Gott að vökva með blómaáburði 2 x í mánuði yfir sumartímann. Þarf reglulega vökvun og vetrarskýli.