Heggur ‘Laila’

Upplýsingar

  • Latneskt heiti: Prunus padus 'Laila'
  • Plöntuhæð: 4-6 m
  • Blómlitur: Hvítur
  • Blómgunartími: Júní


  • Lýsing

    Harðgert og vindþolið lítið tré eða stór runni. Þrífst best á sólríkum stað en þolir skugga, blómstrar þá minna. Þrífst best í næringarríkum jarðvegi. Blómstrar fíngerðum uppréttum og ilmandi blómklösum.