Brúðarstjarna
Upplýsingar
- Latneskt heiti: Cosmos bipinnatus
- Plöntuhæð: 20-30 cm
- Blómlitur: Bleikur
- Blómgunartími: Allt sumarið
Lýsing
Þarf sólríkan og skjólgóðan vaxtarstað. Þrífst vel í öllum vel framræstum jarðvegi. Blómstrar mikið og meira ef visnuð blóm eru týnd af jafn óðum. Vökva með áburðarvatni 1 x í viku. Fallegt blóm í t.d. miðju á keri eða eitt og sér.