Blágreni
Upplýsingar
Lýsing
Harðgert, skuggþolið sígrænt tré. Þrífst best í frjóum og frekar þurrum jarðvegi. Frekar hægvaxta en verður þétt og keilulaga. Barrið bláleitt. Þarf skjól eða vetrarskýli fyrstu árin. Gott til ræktunar inn til landsins og hentar staksætt í garða.