Bergflétta ‘Baltica’

Upplýsingar

  • Latneskt heiti: Hedera helix 'Baltica'
  • Plöntuhæð: 5-6 m
  • Blómlitur: Gulgrænn
  • Blómgunartími: September


  • Lýsing

    Harðgerð, skugg – og saltþolin sígræn klifurplanta með heftirætur sem festa sig við hrjúft yfirborð. Þarf rakan, frjóan og vel framræstan jarðveg. Blöðin geta gulnað í vorsól. Best á vestur- og norðurvegg húsa. Smágerðari laufblöð en á venjulegri bergfléttu. Má líka nota sem þekjuplöntu í beð.