Basilika sítrónu
Upplýsingar
Lýsing
Þarf að rækta inní húsi eða gróðurhúsi. Þarf meðal vökvun og gott að láta þorna á milli. Vökva með áburðarvatni 1x í viku. Blöðin eru mjög bragðsterk með sítrónu keim og notuð sem krydd. Það er talið að basilika sem er inni fælir flugur frá heimilinu.