Kóngulóarhúslaukur
Upplýsingar
- Latneskt heiti: Sempervivum arachnoideum
 - Plöntuhæð: 0,1-0,15 m
 - Blómlitur: Rauður
 - Blómgunartími: Júlí
 
Lýsing
Meðalharðgerð. Vill sólríkan vaxtarstað og þrífst vel í þurrum og rýrum jarðvegi. Þolir vel þurrk og að standa í potti. Fær hvít löng hár sem minna á kóngulóavef. Sígrænt við góð skilyrði.
					


